| Geta allir lært að kafa?
Já nánast allir geta lært að kafa. Flestir uppfylla auðveldlega þær kröfur sem gerðar eru á námskeiðinu. Líkamlega þarft þú að hafa almenna sundkunnáttu og vera laus við óþægindi og vera afslappaður í vatninu. Andlega þarft þú að vera með þroskað viðhorf, góða dómgreind og sjálfs aga. Auk góðrar heilsu þurfa hjarta-, æða- og lungnakerfi að vera í góðu lagi. Þó að svo að einhverji kvillar hrjái þig þá mælum við með því að þú hafir samband við okkur og við reynum að aðstoða þig til að skera úr um hæfni þína til köfunar. Hversu gamall þarf maður að vera?
Þessari spurningu er erfitt að svara því að fólk er svo misjafnt í andlegum og líkamlegum þroska. Þó svo að reglur PADI segi að þú getir lært köfun ef þú ert orðinn 12 ára þá eru íslenskar aðstæður þannig að Köfunarskólinn áskilur sér rétt til að hafna nemendum á þeim forsendum að þeir séu of ungir. Það er æskilegt að nemendur hafi náð 17 ára aldri en ef þú ert yngri þá skaltu bara hafa sambandi við okkur í gegnum síma og við ræðum málið frekar. Allir sem eru yngri en 18 ára eiga að hafa skriflegt leifi foreldra. Er þetta ekki dýr íþrótt?
Það er langt frá því að köfun teljist til dýrar íþróttar þó svo að mörgum gæti fundist stofn kostnaðurinn svolítið hár en hann rokkar frá 70 - 350 þús en hér er um að ræða fjárfestinu þar sem afföll á verði búnaðar eru ekki svo mikil. Afgangurinn er ókeypis þar er að segja að loft fyrir félagsmenn SKFÍ er þeim að kostnaðarlausu (félagsgjöld eru 7.500 kr á ári) þá er bara eftir almennur viðhaldskostnaður búnaðs sem er sambærilegur við reiðhjól. Bátaferðir og köfunarferðir á vegum felagsins eru seldar á kostnaðarverði. Því ætti kostnaðurinn ekki að vera neinum ofviða. Hvað endist loftið í kútnum lengi?
Það er ómögulegt að svara þessari vegna þess að kútar eru mistórir og fólk notar mis mikið loft auk þess sem að loftið þjappast saman á dýpi og endist skemur. Algengt er að sportköfun taki 40 - 75 mín en kafarinn er miklu háðari reglum um tíma á viðkomandi dýpi heldur en stærð kútsins. Fær maður Skírteini
Eftir að hafa á fullnægjandi hátt klárað hjá okkur námskeið munt þú hljóta annað hvort PADI Open Water Diver Skírteini (lágmarks aldur 15 ár) eða PADI Junior Open Water Diver skírteini (lágmarks aldur 12 ár). Bæði skírteinin staðfesta það að þú hafir lokið þjálfun og að hæfni þín uppfylli staðlaðar kröfur sem gerðar eru af PADI. Starfsmenn köfunarbúða, köfunarbáta og aðrir fagmenn munu krefjast þess að sjá skírteini þitt áður enn þeir leifa þér að leigja eða kaupa köfunarbúnað,fylla á kúta eða taka þátt í ýmsum köfunartengdum aðgerðum. Skíteini þetta er tekið gilt allstaðar í heiminum. Er hægt að leigja búnað?
Já á meðan þú ert á námskeiði eða í för með kennara, því miður þá hefur okkur ekki reynst happadrjúgt að leigja út búnað til einstaklinga sem eru ekki á í ferðum á okkar vegum, það sem við gerum hins vegar er að veita þér ómælda aðstoð við val á búnaði og komum jafnvel með þér að skoða búnað þér að kostnaðar lausu. Þú getur líka farið og litið á notaðan búnað hjá okkur og haft svo samband. Eða bara skellt þér á nýjan ódýran búnað.
Hvað tekur námskeiðið langann tíma?
Námskeiði er þannig uppbyggt að nemendur læra á sínum eiginn hraða í samráði við kennarann. Algengt er að það taki 2-3 vikur að útskrifast en einnig er hægt að setja þetta þannig upp að þú klárir námskeiðið á mun skemmri tíma eða mun lengri tíma. Einfaldast er að segja að þú kemur og færð bókapakkann og við sníðum námið að okkar tíma í sameiningu. Hvað er PADI?
PADI stendur fyrir Professinal Association of Diving Instructors eða Fagsamtök Köfunarkennara. PADI er stærstu samtök sem tengjast þjálfun kafara í heimi. PADI setur staðla fyrir þjálfun kafara, þjálfar og útskrifar kennara, býr til kennslu efni og þjónar meðlimum sínum og heldur um ferilskrá kafara á þeirra vegum. Vegna þess að PADI hefur ítarlegustu og útbreiddustu kafarakennslu sem völ er á getur þú verið þess fullviss að þú er að hljóta bestu og virtustu köfunar réttindi í heimi. Geta reykingarmenn lært að kafa?
Margir sportkafarar reykja, það er þeim alls ekki til framdráttar en reykingar hindra ekki að þá sem vilja læra að kafa. Hvað tekur námskeiðið langann tíma?
Námskeiðið tekur um 2- 4 vikur, allt eftir ástundun nemanda. Tímafjöldi námskeiðsins er c.a. 60 tímar fer allt eftir nemandanum.
Á hvaða tímum fer námskeiðið fram?
Námskeiðið fer að mestu fram eftir óskum nemanda, tilboð þýða virkir dagar líka, tímar í sundlauginni fara bara fram um helgar. Kennt er þá daga vikunnar sem henta hverju sinni.
Er hægt að gera þetta með vinnu?
Allir sem við höfum kennt hafa þurft að vinna fyrir námskeiðinu. Er hægt að semja eitthvað um verð fyrir hópa?
Já ef um hópa er að ræða þá er verðið samkomulags atriði, fer allt eftir því hversu stór hópur það er. Hvar fer kennslan fram?
Sundlaugartímarnir eru kenndir í Sundhöll Reykjavíkur, bóklegu tímarnir eru kenndir í Kópavogi og verklegu tímarnir fara fram í Straumsvík eða Óttastöðum. Fær maður svokallað Open water certificaton að loknum námskeiðinu?
Já, eftir námskeið fá allir skírteini |