Vefverslun

Vefverslun köfunarskólans er í vinnslu.

En við viljum benda á að hægt er að skoða vöruúrvalið í vörulistanum

Annars hvetjum við alla til að koma og skoða úrvalið í köfunarbúðinni á Grandagarði 14

Njóttu reynslunar,- lćrđu ađ kafa án fyrirhafnar. Leigđu búnađ ţó svo ađ ţú kunnir ekki á ţurrbúning.
Prenta   

Þetta fyrirkomulag er til mikilla hagsbóta fyrir nemendur en það er ekki allt án vankvæða. Þetta fyrirkomulag er einungis í boði yfir sumarmánuðina á meðan hitastig sjávar er með þeim hætti að þetta sé ákjósanlegur kostur fyrir alla ( fólk er mjög mis "heitfengt"),en til þess þarf hitastigið að vera yfir 8°celsíus sem er mjög þægilegt hitastig fyrir galla af þessari gerð. Þegar hitastigið er svo komið yfir 10°celsíus þá eru blaubúningar algjörlega málið hvort sem þú ert þurrbúnings kafari eða ekki því það eru svo margir kostir við að kafa í blautbúning.                                                         

Sjá hitastig sjávar við Reykjavík á mynd hér að neðan  


  • Aukin hreyfanleiki
  • Minni vigt af blýum til að sökkva manni
  • Þægilegra að stjórna flotöfnun
  • Þurrbúnings kunnátta óþörf

Engar þéttingar eru sem leggjast að hálsi og ermum á blautbúningum og allmennt líður fólki mun betur í blautbúning heldur en þurrbúning ef hitastig sjávar er boðlegt.
Það er ekki nýtt af nálinni að kafa í blautbúning við ísland,- fyrir daga þurrbúninga köfuðu menn við strendur landsins í blautbúningum allan ársins hring og voru gæði þeirra búninga langt frá því að vera jafn mikil og gæði þeirra búninga sem notast er við í dag.
Enn þann dag í dag koma kafarar af gamlaskólanum í verslun okkar og kaupa sér blautbúninga til notkunnar fyrir allt árið. Og kennarar skólans og túristar hafa kafað í blautbúningum í Silfru á Þingvöllum.

Hinsvegar þá er mun þægilegra að nota þurrbúninga þegar vetrar og er það ekki síst til að koma upp þurr þegar maður klæðir sig úr búningnum. 

Það er mikill kostur fyrir nemendur að læra notkunn beggja búninga og margir kafarar hafa kannski ekki að aðaltakmarki að kafa við ísland allan ársins hring heldur vilja hafa réttindinn til að geta gengið að leigubúnaði.


Ástæða þessa þróunarverkefnis er því sú sama og í heiðri er höfð við alla starfsemi skólans,- að auka gæði kennslu og að gera köfun áhugaverða og aðgengilega öllum sem hana langar að stunda.
Og eins og alþjóð veit hefur hitastig sjávar við ísland verið að hækka undanfarinn ár og hæstu tölur hitamæla okkar kafarana hafa farið í allt að 15-16°c seinnipart sumars hérna í Faxaflóanum.

Það er líka ekki úr vegi fyrir íslenska kafara sem nota að jafnaði þurrbúning að eiga einn svona blautbúning til skiptana,- líkt og maður á stuttbuxur svona fyrir sumarið. Þessir nýju búningar eru tvískiptir og er innri búningurinn með löngum ermum og löngum skálmum og nýtist vel við köfun erlendis,- svo á sumrin hérna heima er lag að fara í bæði löginn ytra sem innra og skella sér í létta köfun með öllum þeim kostum sem fylgja blautbúningum.
Til að sannreyna þessa kenningu þá er bara að hafa samband og leigja sér galla taka þetta á gleðinni um borð í Maríu RE-747 á góðviðrisdegi.
Eða bara skella sér á eitt eintak í verslun okkar,- hagstæðustu verðinn eru þar.

-nú geta þeir sem hafa lært köfun erlendis eða hérlendis skellt sér í kaf hérlendis án þess að þurfa að læra á þurrbúning þegar vel viðrar og aðstæður eru réttar. Einfalt er að leigja blautbúning og búnað og skella sér á áhugaverða staði með okkur eða á eiginn vegum.

nánari upplýsingar um búningana má finn á heimasíðu Northern Diver http://ndiver.com/site/wetsuits/wetsdelta_semi.html


 

 
Fréttabréf
Skráđu ţig á póstlistann okkar

Tölvupóstfangiđ ţitt