|
| |
| Vefverslun köfunarskólans er í vinnslu. En við viljum benda á að hægt er að skoða vöruúrvalið í vörulistanum Annars hvetjum við alla til að koma og skoða úrvalið í köfunarbúðinni á Grandagarði 14 |
|
|
|
Magnađur sími til sölu..
Prenta
Magnús Már Hrafnsson nemandi í Open Water fræðunum var fyrir því óhappi eftir köfunarferð að á leið sinni frá bát uppá bryggju datt síminn han s úr vasanum. Þetta var í nóvember og tekið var að skyggja. Síminn skoppaði á þrepunum og féll að lokum í hafið með skvampi sem vakti athygli hinna kafaranna. Þrátt fyrir að ekki væri líklegt að síminn yrði á lífi eftir baðið ákvað Matthías Bjarnason kennari að taka köfun niður og sækja líkamlegar leifar símans. Niðri var hið fínasta skyggni og höfninn kraumaði af lífi, krabbar, marhnútar , sprettfiskar og ufsatorfur héldu Matta selskap á meðan skimað var eftir símanum.
Hlutirnir hafa tilhneigingu til að svífa um á leið sinni niður. Svo var einnig í þetta skiptið. Síminn fannst þó að lokum og ekki svo langt frá honum var rafhlaðan. Synt var með hann upp og síminn var settur beint í fötu fullri af ferskvatni, rétt eins og á að gera þegar raftæki líkt og símar og myndavélar lenda í svona óhöppum.
Maggi og magnaði síminn hans fóru að þessari köfun lokinni saman heim þar sem Maggi hlúði að símanum sínum eftir fremsta megni. Þegar síminn var talinn þurr og til í slaginn var reynt að keyra hann upp en hann lét á sér standa. Maggi greyjið neyddist til að kaupa sér nýjan síma til að geta hringt í köfunarkennarana sína
Svo liðu tímar og eftir áramót ákvað Maggi að tími væri til kominn að leggja flakið af gamla símanum sínum til hinstu hvílu. Áður en af því varð ákvað Maggi að gefa símanum einn séns til að sanna gildi sitt sem kafarasími. Og vitið menn, kraftaverkinn hafa greinilega gerst um jólinn.........síminn keyrði sig upp og hefur aldrei verið betri. Magnaður sími, eins og geta má sér til þá gengur Maggi stoltur um með þennan síma og bæði hann og síminn eru kominir með Open Water Diver réttindinn. En Maggi á tvö stykki af þessum símum þar sem hann keypti sér samskonar síma eftir að Kafarasíminn fór í sjóinn. Maggi talar ekki tveim tungum og því er annar síminn til sölu. Auðvitað ekki sá sem er með köfunarréttindi heldur sá nýji. Nánari upplýsingar um síman er að finna á slóðinni http://europe.nokia.com/A4160321 Þetta er að sjálfsögðu nýr sími og þú getur haft samband við Magga í síma 868-2594 ef þig langar í svona síma. Ef þig langar í Köfun þá hringirðu að sjálfsögðu í köfunarskólann sími 6994556 eða 7705030. |
|
|
| |
Skráđu ţig á póstlistann okkar
|
|
|
|