11 ára afmćli Nitrox á íslandi fagnađ međ komu nýrrar pressu....
Prenta

11 ára afmæli Nitrox á íslandi fagnað með komu nýrrar pressu.... Köfunarskólinn.is hefur frá árinu 1995 blandað nitrox með hlutaþrýsingsaðferðinni sem felur í sér að hækka hlutfall súrefnis í andrúmslofti með því að bæta 100% súrefni við andrúmsloft. Aðferðinn hefur haft orspor áhættu enda er meðhöndulun súrefnis einungis hættulítil viti menn hvað þeir eru að gera og hafi til þess Nitrox Mixer Blender réttindi líkt og hefur verið fyrir hendi í Köfunarskólanum. Nú er þó komið að því að styttist í komu stærstu membru pressu landsins sem ætlað er að þjóna íslenskum Köfurum í Sportkafarafélagi Íslands og nemendum skólans. Köfunarskólinn sem starfar í samstarfi við félagið fagnar komu pressunar og þeirri staðreynd að nú verður aðgengi að nitrox það auðvelt að búast má við að það verði algengara í notkunn en loft. Í það minnsta hjá reynslu meiri köfurum sem stunda sportið að kappi. Köfunarskólinn og félagið koma því til með að geta boðið mönnum í framtíðinni auðvelt aðgengi að Nitrox í blöndum frá 0-100% til notkunnar í köfunum og afþrýstibiðum. Svo skemmtilega vill til að við komu pressunar eru liðinn 11 ár frá því að Matthías Bjarnason kennari við Köfunarskólan.is & Kafa.is kom með kennararéttindi í Nitrox fræðum og tók bæði blöndunar réttindi auk kennara réttinda í BASIC og ADVANCED Nitrox frá IANTD auk DEEP AIR INSTRUCTOR réttinda. Að sjálfsögðu var námskeiðið tekið eins og önnur námskeið á hjá kennurum skólans á besta ákjósanlega staðnum og varð fyrir valinu að læra hjá Kevin Gurr hjá CIS-Lunar þróunar stöðinni í Bretlandi en hann er hönnuður hinnar fullkomnu VR3 Köfunartölvu.  Köfunarskólinn.is hlakkar til að takast á við að þjálfa fleiri félaga sportkafarafélagsins sem og aðra sem áhuga hafa í notkunn nitrox nú þegar það er orðið einfaldara ódýrara og auðfánlegra.

|