Vefverslun

Vefverslun köfunarskólans er í vinnslu.

En við viljum benda á að hægt er að skoða vöruúrvalið í vörulistanum

Annars hvetjum við alla til að koma og skoða úrvalið í köfunarbúðinni á Grandagarði 14

Mögnuð Vestmannaeyjaferð frammundan !!!!
Prenta   

Mögnuð Vestmannaeyjaferð frammundan !!!!
Sportkafarafélag Íslands Stendur fyrir árlegri Vestmannaeyjaferð dagana 21.júlí til 23.júlí. Þeir sem mæta eiga von á miklu enda hefur á undanförnum árum bæst í áhugaverðar kafanir á þessum slóðum en að þessu sinni standa upp úr „Kolkrabba köfun“ í Kaplagjótu og Nýjir Neðansjávardrangar sem vert er að skoða. Ekki má gleyma “klósettinu” neðansjávar göngum sem kafarar sogast í gegnum með straumi og fleiri áhugaverðum stöðum sem ekki hafa verið skoðaðir lengi.


Ljóst er að það verða mjög áhugaverðar kafanir í boði og góða við Vestmannaeyjar er það að nánast er alltaf hægt að finna áhugaverðan stað í vari hvernig sem viðrar.
Það verður því enginn svikinn af þessari ferð. En vert er að minna á að allir verða að vera í fínu formi og því gott að minna gamla sem nýja kafara á að taka nokkrar upprifjunar kafanir áður en lagt er í hann.
Endilega skráið ykkur í för næstkomandi fimmtudag og verið dugleg að kafa þangað til.

Fréttabréf
Skráðu þig á póstlistann okkar

Tölvupóstfangið þitt