köfunarstađir
Bryggjuendi
Prenta    Senda í Póst

Fæstir af þeim köfurum sem kafa við Ísland hafa aðgang að bátum til köfunar og af þeim sökum eru flestar kafanir við landið farnar á sundi frá ströndu. Aflíðandi botn veldur því á mörgum stöðum að kafari verður að synda langa leið áður en hann kemst á það dýpi sem hann sækist eftir. Þess vegna er köfun frá tilteknum höfnum vinsæl þar sem kafarinn kemst fljótt niður á hæfilegt dýpi.










Lesa Meira...



El Grillo
Prenta    Senda í Póst

Þann 16. febrúar árið 1944 náði þýski flugherinn að valda bandamönnum miklum skaða er þrjár sprengjuflugvélar gerðu árás á olíuflutningaskipið El Grillo.
Skipið hafði legið undir akkerum frá haustinu 1943 og þjónustað flota bandamanna sem birgðaskip, það var því mikilvægur hlekkur fyrir sjóhernað þeirra.
Þessu gerðu Þjóðverjar sér grein fyrir, þrátt fyrir að nokkur orustuskip lægju undir akkerum í Seyðisfirði þennan dag þá beindust árásir sprengjuflugvélanna þriggja eingöngu að olíuskipinu El Grillo.







Lesa Meira...



Innrivík
Prenta    Senda í Póst

Innrivíkin er innan hafnarsvæðisins í Straumsvík, rétt handan við hliðið sem lokar því fyrir óviðkomandi umferð. Sportkafarar hafa hins vegar aldrei verið óviðkomandi í Straumsvík heldur hafa þeir gjarnan komið við og spjallað við hliðvörðinn og beðið um leyfi til að svamla óhindrað með öndum og ufsum. Þegar komið er í gegnum hliðið liggur Innrivíkin á vinstri hönd auðkennileg af steyptum ferhyrning og bryggju þar sem þægilegt er að búa sig undir köfun.










Lesa Meira...



Kleifarvatn
Prenta    Senda í Póst

Í gegnum tíðina hefur Kleifarvatn verið vinsæll köfunarstaður. Í vatninu eru nefnilega góðar aðstæður fyrir þá sem eru að læra eða hafa lokið námskeiði og vilja æfa sig.

Vatnið er frekar tært svona 10-15 metrar og skyggnið breytist ekki líkt og það gerir í sjónum. Þess vegna geta kafarar nánast alltaf gengið að aðstæðum vísum. Þó bera að geta þess að í miklum vindum og þá sérstaklega í austanátt getur vatnið átt það til að gára og öldurnar verða þó nokkuð háar í slíkum aðstæðum. .








Lesa Meira...



Óttastađir
Prenta    Senda í Póst

Á móts álverið í Straumsvík stendur fallegt hvítt hús sem hýsir listamannamiðstöðina Straum. Húsið er auðkennilegt af þeim listaverkum sem standa fyrir utan það. Fyrir handan þetta hús er vegarslóði sem liggur að Óttastöðum.

Óttastaðir eru mjög fallegur köfunarstaður og á yfirborðinu stendur gamall rauður beitningarskúr og leifar af gömlu skipi sem eru rústir einar í dag. Þarna var útgerð í gamladaga og rennan sem notuð var til að draga upp bátana skapar kjörinn göngustíg fyrir kafara.

 

 

 

Lesa Meira...



Skútan
Prenta    Senda í Póst

Standard er nafn á flaki skútu, sem kafararnir Erlendur Bogason og Öivind Kaasa, fundu á botni Pollsins á Akureyri í byrjun desember árið 1996. Erlendur telur sig hafa upplýsingar um að þetta sé skútan Standard.

Hann hefur gert ýmsar mælingar á flakinu og mældist kjölurinn 55 metra langur en heildarlengd flaksins er yfir 60 metrar. Ástand flaksins er nokkuð gott miðað við þann tíma sem það hefur verið neðansjávar enda er mikið ferskvatn í pollinum og skjólgott á þessum stað. Samkvæmt þýskum gögnum, sem til eru á skrifstofu Samherja á Akureyri, hóf þýska fyrirtækið NORDSEE síldveiðar í hringnót við Ísland sumarið 1905.







Lesa Meira...



Straumsvík
Prenta    Senda í Póst

Straumsvík virðist í fljótu bragði ekki hafa upp á mikið að bjóða áhugasömum sportköfurum stórir geymar sem inni halda súrál gnæfa hátt yfir höfninni og svæði sem geymir stærstu stóriðju landsins virðist í fljótubragði ekki eiga samleið með sportköfurum sem leitast við að skima eftir óspilltri nátturu undir yfirborði sjávar.

En Straumsvík hefur sérstöðu meðal íslenskra köfunarstaða, hún er og mun sjálfsagt lengi verða ein af vinsælustu köfunarstöðum á landinu.







Lesa Meira...



Strýtan
Prenta    Senda í Póst

Í miðjum Eyjafriðinum á 65 metra dýpi er hver sem út streymir heitt vatn ríkt af steinefnum. Þegar þessi steinefni komast í snertingu við kaldan sjóinn sem umleikur hverinn verður hröð storknun steinefnanna og í tímans rás hefur myndast kalksteinssúla sem teygir sig frá 65 metrum upp á 16-20 metra. Þetta mikilfenglega fyrirbrigði spýtir 70°C heitu ferskvatni sem blandast sjónum og skapar þægilega heitt vatn, sem dregur að sér fjölbreytt lífríki.










Lesa Meira...



Ytrivík
Prenta    Senda í Póst

Ytrivíkin er á milli rauðu og hvítu súrálstankanna og gasstöðvarinnar í Straumsvík. Hún er í raun ekki inni í Straumsvík en er innan hafnarsvæðisins sem er við álverið. Þetta er mjög fallegur staður og einna fallegastir eru tveir steinbogar sem eru á svæðinu. Steinbogarnir eru eins og smágerð mynd af boganum sem lá yfir Ófærufoss hér áður fyrr. Auðvelt er að synda undir þá og fjölskrúðugt dýralíf er undir brúnni sjálfri.









Lesa Meira...



Ţingvellir
Prenta    Senda í Póst

Ein af fegurstu nátturuperlum Íslands og sagnfræðilegum gimsteinum þjóðarinnar eru Þingvellir. Þingvellir eru þjóðgarður og segja má að þeir ferðamenn sem sækja landið heim séu nánast bundnir skyldumætingu á þennan einstaka stað sem myndar eitt af hornum hins gullna þríhyrning íslenskrar ferðaþjónustu - Þingvellir - Gullfoss og Geysir.

Lesa Meira...