Námskeiđin

PADI köfunarnámskeið hefur mikið að bjóða

Í meira en 25 ár hefur PADI (Professional Association of Diving Instructors) verið leiðandi, þegar talað er um sportköfun. PADI er heimsins stærsta kerfi fyrir köfunarkennslu og er þekkt í öllum heiminum.


Veldu námskeið eftir þínum áhuga!

PADI-námskeiðin gefa þér möguleika á að velja námskeið sem þú hefur áhuga á. Að loknu grunnnámskeiðinu getur þú valið á milli fjölda námskeiða. Hvert og eitt gefur möguleika á skemmtilegri og ánægulegri köfunarreynslu. En láttu þér ekki bregða því að hvert og eitt námskeið er tekið fyrir sig og á milli námskeiða kemurðu til með að fara í margar sportkafanir sem auka ánægju þína og reynslu.

PADI Open Water Diver (grunnámskeið- réttindi niður að 18 metrum)

Upphaf ánægjunnar við köfun byrjar þegar þú skráir þig á grunnámskeið. Á námskeiðinu kemur þú til með að taka þátt í grundvallarköfunaraðferðum, í sundlaug og í sjó, undir leiðsögn þjálfaðra köfunarkennara. Þú færð grundvallarkunnáttu í köfun í gegnum þetta námskeið, sem er heimsins vinsælasta köfunarnámskeið í sportköfun. Eftir að hafa lokið náminu verður þú handhafi PADI Open Water Diver-köfunarskírteinis sem gerir þér kleift að leigja búnað og kafa hvar sem er í heiminum

Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar um námskiðið

Skráning

PADI Advanced Open Water Diver (framhaldsnámskeið- réttindi niður að 30 metrum)

Eftir að hafa lokið Open Water Diver-námskeiði er ekki úr vegi að öðlast smá reynslu og skella sér svo á Advanced Open Water Diver-námskeið. Köfun er samspil námskeiða og reynslu og er Advanced-námskeiðið bæði fyrir þá sem hafa mikla reynslu og svo hina sem vilja stytta sér leiðina. Á námskeiðinu er kennt ýmislegt sem nýtist manni vel. Sérstaklega er farið yfir notkun áttavitans og köfurunum kennt að koma úr kafi sem næst þeim stað er þeir vilja koma upp á. Þetta forðar mönnum frá löngu og þreytandi sundi á yfirborðinu. Einnig er á öruggan hátt farið í djúpkafanir allt niður að 30 metrum. Einnig er köfurum kennt að kafa á nóttuni því næturköfun getur verið mjög spennandi og þótt ótrúlegt megi virðast þá er hún jafnvel meira spennandi en köfun á daginn.

Skráning

Eftir þessar kafanir, sem teljast til skyldukafana, eru tvær kafanir teknar sem geta verið einhverjar eftirfarandi: fjallaköfun, bátsköfun, straumköfun, þurrbúningsköfun, leit og björgun hluta, náttúruköfun, neðansjávarljósmyndun/video eða flakaköfun. Þetta námskeið inniheldur tvenns konar mismunandi kennslumöguleika, allt eftir þínum áhuga og tíma. PADI Advanced Open Water sem inniheldur fimm kafanir og PADI Advanced Plus sem eru níu kafanir sem gefa aukna reynslu.

PADI Specialty Diver (sérnámskeið)

Þessi námskeið eru hin sömu og í Advanced Open Water nema að því leyti að farið er nánar út í hvert sérsvið. Námskeiðin eru byggð upp á því sem þú hefur mestan áhuga á þannig að þú átt völina. Námskeiðin sem hægt er að velja á milli eru: fjallaköfun, bátaköfun, hellaköfun, djúpköfun (40 metrar ), straumköfun, þurrgallaköfun, tækjafræði, ísköfun, fjöldýpisköfun, neðansjávarrötun með compás og sextant, leit og björgun hluta , náttúrufræðiköfun, neðansjávarljósmyndun, flakaköfun og fleira.

Skráning

Dry Suit Diver

Þetta námskeið er alveg brilliant fyrir þá sem hafa lært erlendis en vilja kafa við Ísland
Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar um námskiðið

Enriched Air Diver

er hvað mest spennandi af þessum námskeiðum. Með því að hækka hlutfall súrefnis í loftblöndu og þar með lækka hlutfall köfnunarefnis er hægt að ná miklu meiri tíma niðri. Þetta námskeið er alger skylda fyrir þá sem hafa unun af því að vera lengi í kafi.
Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar um námskiðið

Skráning

Semi Closed Reabrether Specialty Diver

Lærðu á Draeger Dolphin eða Ray enduröndunartæki og skelltu þér í köfun eins og hún gerist best árið 2001. Enduröndunartæki gera þér kleift að nálgast dýralífið á nýjan og heillandi hátt þar sem tækin skila frá sér litlum eða engum loftbólum. Þessi tækni er engin loftbóla sem er að fara að springa heldur elsta form köfunar á SCUBA. Nú eru þau loksins orðin almenningseign laus úr höndum hernaðarbrölts og að sjálfsögðu erum við fyrstir á svæðið með flottustu græjurnar og námskeið í stíl..

Skráning

Medic First Aid (Skyndihjálp)

Á PADI Medic First Aid-námskeiðinu (MFA) lærir þú rétt handtök fyrstu hjálpar: blástursaðferð, hjartahnoð, sárameðhöndlun, stöðvun blæðingar og meðhöndlun slysa eftir ofkælingu, hita og eitranir. Námskeiðið inniheldur praktískar æfingar, þar sem farið er yfir réttu handtökin sem beita þarf þegar komið er að slysi. Eftir námskeiðið ert þú betur undirbúinn undir lífið, sem getur skipt sköpum þegar er komið er að slysstað. Allir geta tekið þátt í MFA-námskeiðinu, líka þeir sem ekki eru kafarar. Medic first er hluti af Rescue námskeiðinu, en hér er lögð meiri áhersla á meðhöndlun köfunarslysa svo sem köfunarveiki, drukknun, ofkælingu og slys af völdum sjávardýra.

Skráning

PADI Rescue Diver (Björgunarkafari)

Námskeið í að verða björgunarkafari leggur áherslu á köfunaröryggi. Þú lærir að þekkja og koma í veg fyrir köfunarslys ásamt réttu hantökunum ef slys ber að. Þrátt fyrir að slys séu mjög sjaldgæf í köfun þá er þetta námskeið mjög vinsælt enda gefandi og byggt þannig upp að þátttakendur hafa gaman af. Eftir námskeiðið finnur maður til aukins sjálfstraust í köfun þar sem kunnátta og hæfni hafa aukist til muna.

Skráning

PADI Master Scuba Diver

Þegar þú hefur lokið PADI Advanced Open Water Diver og PADI Rescue Diver ásamt fimm sérnámskeiðum, getur þú tekið efstu gráðu sem sportköfun getur veitt, Master Scuba Diver.

Skráning

PADI Divemaster

Divemaster er fyrsta þrepið til atvinnu innan sportköfunar. Námskeiðið er góð undirstaða fyrir stjórnun auk þess sem það gefur dýpri skylning á bóklegri og verklegri köfunarkunnáttu. Þessi þekking gefur möguleika á að stjórna köfunarferðum með ferðamenn og því má segja að Divemaster sé neðansjávarleiðsögumaður. Hann fær jafnframt réttindi til að aðstoða kennara við kennslu í sportköfun.

Skráning